Jæja það er komin 2 desember 2011 og árið er heldur búið að líða, ég er búin að vera í háaleitisskóla 4 bekk (áttum heima upp á Ásbrú, það er gamla kanasvæðið) Meðan mamma var að klára skólann, mér leið ekki of vel þar og langaði mikið að fara aftur í Hvaleyrarskóla. Mamma útskrifaðist úr sínum skóla í maí. Sumarið leið, við fluttum til Hafnarfjarðar og við krakkarnir fengum svo að vita að við værum að fá lítið systkini í janúar 2012. Verður voða spennandi. Ég fór svo í 4 vikur til pabba og hef svo farið aðra hverja helgi eftir það.
Söng svo með gospelkórnum mínum á ljósanótt og í stundinni okkar.
Nú er ég í 5 bekk í Hvaleyrarskóla og er í barnakór Hafnarfjarðarkirkju og einnig að æfa körfubolta. Dugleg að hjálpa mömmu þegar hún biður mig að gera eitthvað, fara með ruslið og þvott í þurkarann. Mamma á nefnilega pínu erfitt að fara niður og upp í geymsluna :)
En nú er jólamánuðurinn byrjaður og nóg um að vera, helgileikur bæði í skólanum og í kórnum, við systur erum að fara syngja í Hafnarborg á morgun og sunnudaginn með barnakórnum.
En já þetta eru allavega einhverjar fréttir af mér
Kær kveðja Áslaug Guðrún 10 ára duglega skvísa
Nýjustu fréttir af gulldömunni minni :)
Áslaug er í 4 bekk í háaleitisskóla hérna í Reykjnesbæ. Hún saknar aðvísu mjög mikið gömlu bekkjafélaganna. Henni gengur rosalega vel og mjög dugleg að læra. Áslaug er farin að læra sund með sundfélagi keflavíkur og æfir 2 í viku.
Þegar hún fer í skólann tekur hún strætó og svo tekur strætó til baka eftir skóla. Svo fer hún á mentor til að ath hvað hún að læra heima. Hún er ofsalega góð við Ólöfu systur sína og eru þær duglegar að fara í innileikjagarðinn hérna :)
Um helgina fórum við í húsdýragarðinn snemma á sunnudagsmorgun til að gefa dýrunum og sinna þeim. Stelpunum fannst frekar vond lykt í hesthúsinu, en gáfust ekki upp :)
Í sumar er stefnan að flytja aftur í bæinn og hlakkar Áslaugu ekkert smá mikið til leika meira með bestu vinkonu sína hana Katríni :) mjög mikill söknuður þar.
en já þetta er í bili.. þarf að setja myndir inn á og hérna fer Áslaug að fara reyna skrifa hérna með mér
kær kveðja Á s laug Guðrún
meðgangan og fæðingin mín
mamma komst af því að ég væri komin í mallann hjá sér í janúar 2000, daginn eftir að hún átti að byrja á blæðingum, þá bað mamma hann pabba minn labba út í apotek til að kaupa próf bara að ganni, pabbi gerði það og þá kom í ljós að það væri að fara fjölga í familíunni,
svo var bara næstu mánuði farið í mæðraskoðanir, sónara og fleira, auðvitað var líka aðeins farið í ferðalög :)
28 ágúst 2001 var mamma send upp á spítala og lögð þar inn í 2 nætur út af of háum blóðþrýstingi, mamma var heima eina nótt og send aftur upp á spítala í 2 nætur, 10 sept fórum við aftur í gistingu þar og vorum bara í eina nótt (minnir að þetta hafi verið svoleiðs) og átti að koma aftur í skoðun upp á spítala 14 sept á afmælisdaginn hjá Agli, ok fór þangað í skoðun og blóðþrýstingurinn var lala og átti alveg að sleppa nema þá var beðið um þvagsýni ok ekkert mál , það kom í ljós að eggjahvíta var komin, þannig maður fékk að kíkja heim ná í föt og svoleiðs og niður á glerártorg að kaupa afmælisgjöf handa Agli.
16 sept... kl 10 um kvöld var settur stíll og mónitór í klst og mátti ekki hreyfa mig (úff það var erfitt) fór svo í sónar og kom í ljós að barnið væri ekki enn búið að skorða sig almennilega, þannig að það var bara farið að sofa og Egill fékk að gista á spítalanum vegna þess að það var haldið að maður færi af stað um nóttina, svo rumskaði maður kl 6 og fékk annan stíl og fór svo áfram að sofa, kl 11 var skoðun ath hvernig stadusinn væri 1-2 í útvíkkun eins og var búið að vera í 3 vikur, þannig að ákveðið var að sprengja belginn og fór maður inn á fæðingarstofuna og sprengdur var belgurinn kl 11.30 . Mér fanst rosalega skrýtið að finna þetta heita vatn koma og þegar maður stóð upp þá vildi maður helst bara fara á klósettið og sita þar sem fastast en nei það mátti maður ekki , helst labba fram og til baka allan daginn var manni sagt, kl hálf 2 fékk ég dripp ,, ekkert skeði þennan dag og var tekið drippið úr hjá mér kl 22.00 þetta kveld og gefið mér verkjatöflur og sagt mér að fara sofa,
morgunin eftir þann 18 september 2001
var byrjað að gefa mér dripp kl 7 um morguninn, þegar kl var að verða 10 var ég farin hringja í Egil út af þetta var farið að verða vont, þá fékk ég loksins smá verki, ekki mikla en samt sem áður verki :)
um hádegi kemur fæðingarlæknirinn og skoðar hjá mér og segir við mig að ég fari í keisara eftir klst út af því að þeir sprendu belginn og buið gefa mér dripp og svona, samt var engin útvíkkun. jæja þá vissi ég það , ég var að fara fá loksins barnið mitt í hendurnar,
Rúna tengdó kom upp á spítalann og var frammi á biðstofu(heldég) meðan ég og Egill vorum inn á skurðstofu.
Áslaug Guðrún Egilsdóttir fæddist kl 19 mínotur yfir 2 þann 18 september og fór Egill og Rúna með henni upp meðan ég var saumuð saman
Unga daman reyndist vera 18 og hálf mörk (4610 grömm) og 53 cm
hún var svo skírð á spítalanum 5 daga gömul og áttum við að fá að fara þá heim en því miður mátti það ekki, ég fékk hita(mamman sko) og mátti ekki útskrifa okkur, þannig hún var á spítalanum meðan það var skírnarkaffi heima hjá ömmu Rúnu og afa Svein.
fengum samt fararleyfi þegar daman var 1 vikna gömul (LOKSINS) hehe
allt hefur gengið að óskum og er hún algjör gullmoli hennar mömmu sinnar :)
þessi fæðingar saga kemur kanski seint inn á síðuna, en þegar maður man hana vel er allt í lagi að skrifa hana hvenær sem er
kær kveðja
Ágústa, Áslaug og co
Litla systir mín hún Ólöf Hulda =)
Ég er orðið stóra systir veiiiii... !!!!
Litla systir mín fæddist á landspítalanum þann 4 sept kl 17.40 og var hún tekin með keisara alveg eins og ég :) við erum keisaraynjurnar hennar mömmu.
hún var 4498 grömm og 53 cm jafnlöng og ég þegar ég fæddist. Annars báðar 18 merkur, ég samt aðeins stærri
hérna er svo heimasíðan hennar ef þið viljið kíkja
Mamma er rosalega stolt af mér. Því ég er svo góð við hana Ólöfu mína :) enda teljum við mamma að hún elski bara mig miklu meira, vegna hve mikið hún brosir til mín en ekki mömmu :)

óska listi um jólagjafir jólin 2006
það sem mér langar í jólagjöf í ár það er margt og mikið skal ég segja ykkur.. mömmu fanst betra að skrifa það hérna, því þegar fólk spyr mömmu þá man hún aldrei neitt hehe...... það er t.d spilið lúdó, litla hafmeyjan, barbí svona vagn með hestum (sá það í hagkaup) baby born sem pissar, sollu stirðu útvarp og fleira sem er til með latabæjar merki, bækur, spil ,svo er það miklu meira.. þetta er bara partur af því sem mér langar í
óskalistinn frá mömmu.. alltaf gott að fá sokkabuxur og nærföt, jafnvel sokka, hún á fullt af gallabuxum en gæti verið gott að eiga joggings eða íþrótta buxur. nóg í bili ;) kv Áslaug Guðrún jólaskvísa
Árin mín myndamál
nýfædd
1 árs
á eftir að redda mynd af því
2 ára

3ára

4 ára

5 ára

ættin min mömmu megin
Ég : Áslaug Guðrún Egilsdóttir
mamma : Ágústa Guðrún Ólafsdóttir
Áslaug Krístín Pálsdóttir Ólafur Sigurður Gústafsson
Páll Oddsson, Sæmunda Þorvaldsdóttir
Gústaf Sigurðsson, Jóhanna Guðrún Bjarnardóttir
mamma á einn hálfbróðir,,
hann heitir Sigurður Arna Ólafsson
konan hans heitir Heiða og þau eiga 3 stráka
Andra Már
Arnar Pál
Ólaf Einar
systkini ömmu Ásu eru :
Sesselja Pálsdóttir gift Þorbergi Bæringssyni þau eiga
Kristínu,
Páll sem er giftur Steinu börnin þeirra eru Sesselja Gróa, Andrea Kristín, Vignir Stein
Sæþór sem er giftur Steinu börnin þeirra eru Þorbergur Helgi og Aníta Rún
Berglind
Ásgerður Ágústa Pálsdóttir,
Böðvar Pálsson sem er látinn, en hann var giftur Rósu Marinósdóttir þau eignuðust 2 dætur
Oddný Böðvarsdóttir maki Stéfán þau eiga 2tvíbura stelpur
Særún Böðvarsdóttir
Rósa giftist aftur og þá honum Kristjáni og þau eða Aðalheiði og Andrés
Þorvaldur Pálsson maki Sarah
systkini Óla Afa
Jóhanna Gústafsdóttir maki Ragnar ... Börn
Hafdís maki hjá henni Ómar börnin þeirra eru Tinna og Telma
Sævar hann á konu líka,,
Linda
Árni Gústafsson maki Bára börn
Sóley maki Egill þau eru að vinna á kárahnjúkum
Katrín maki gosi þau eiga 2 dætur
Karen hún er líka komin með fjölsk
Heiða
og Dagný
Forsíða
Ég heiti Áslaug Guðrún :)



Ég fæddist á sjúkrahúsinu á Akureyri 18 sept. 2001. kl 14:19. ég var tekin með keisara vegna hvað ég var stór og ekkert gekk hjá mömmu minni. Ég var 18 merkur og 53 cm,og með dökkt hár og mjög dökk augu.Pabbi Egill fékk að vera viðstaddur fæðinguna en hann kíkti ekkert yfir bláa tjaldið.Þegar ég kom í heiminn voru allir svo hissa að þetta var stelpa að fólk trúði þessu ekki.
En samt eru allir mjög hrifnir af mér :0))
Fann ekki hvað Áslaug Merkir.
Guðrún Merkir: Nafn þetta er myndað af forliðnum "Guð" sem merkir guð, - goð og viðliðnum "rún" sem merkir dulin, - vinur í raun.
MEYJAN
23. ágúst - 22. september
Hér er kominn einstaklingur sem vill hafa hlutina í röð og reglu og er mjög íhaldssamur. Litla meyjan er að öllu jöfnu auðveld í umgengni, samviskusöm, dugleg og hlýðin en oft á tíðum alvörugefin. Skynsemi meyjarinnar kemur yfirleitt fljótt í ljós og ef kæruleysi er ríkjandi í kringum hana er ekki ólíklegt að hún fari að siða fólk til í kringum sig og hafa vit fyrir því. Hún byrjar snemma að hjálpa til á heimilinu og er oft mjög handlagin. Hún er yfirleitt ekki mikið gefin fyrir að draga athyglina að sér og lítil meyjubörn geta oft haft ofan af fyrir sér sjálf í langan tíma. Foreldrar þurfa að draga fram hið jákvæða því litlar meyjur hafa oft áhyggjur af því að hlutirnir séu ekki nægilega vel gerðir. Því þarf að hjálpa þeim að sjá bjartari hliðar tilverunnar og læra að trúa á eigin getu. Ekki er verra að ýta undir skopskyn þeirra.

Það gerðist svo skemmtilegur atburður núna 4 sept 2006 að ég varð stóra systir =) hún er rosalega sæt og ég er rosalega dugleg að hjálpa mömmu með Ólöfu Huldu systur ,,,,.....
Við mamma og litla systir búum allar saman í hafnarfirði. Ég var í leikskólanum Arnarbergi alveg síðan ég varð 2 ára. En núna er ég sko skóla stelpa. Og grunnskólinn minn heitir Hvaleyrarskóli :)
Ég á eina ömmu í hafnarfirði og hún heitir Ása og svo á ég líka ömmu og afa í sveitinni rétt fyrir utan akureyri og þau
heita afi Sveinn og amma Rúna,,og þar búa líka Lalli frændi og Sigmar frændi. Og pabbi býr á akureyri líka
Amma Ása er mamma mömmu minnar svo á ég einn engla afa hann óla engil hann er uppi á himni, hann var pabbi mömmu hann dó 98
Amma Rúna og afi Sveinn þau eru foreldrar pabba míns
P.S ÞEIR SEM HAFA LJÓTAR SKOÐANIR UM MIG EÐA MÖMMU MÍNA LÁTIÐ ÞAÐ EIGA SIG AÐ SKRIFA INN Á SÍÐUNA !!!
Ólöf Hulda systir mín
mamma mín bloggari =)
pabbi minn og Ellý bloggarar
Díana Ósk frænka mín bloggari
Agla Rún frænka mín bloggari
Elíana Sól frænka mín
Alexander Már frændi minn
leikskólinn minn
Sóley Sonja vinkona mín
Bryndís vinkona mín af leikskólanum
Guðrún Elín vinkona mín af leikskólanum
hæhæ
langt síðan að það var skrifað hérna. Núna verður skrifað oftar endað verður Áslaug dugleg að skrifa hérna núorðið :) Henni langar svo mikið að fara sjá aðeins um síðuna sjálf. En auðvitað verð ég nálægt til að hjálpa henni. Og svo ætla ég að vera dugleg að setja inn myndir. Áslaug mín er að dúxa í skólanum, gengur rosalega í öllum fögum. Orðin fluglæs dóttlan mín og reikningi gengur henni rosalega vel og málfræði :) ég er svakalega stolt af henni. Enda svakalega dugleg
það er nóg að gera hjá henni, skólinn, kór bæði barnakórinn og skólakórinn. Svo er hún byrjuð að æfa handbolta með 7 flokki kvenna í haukum. Og þetta er sko allt að koma hjá henni. Orðin ekkert smá dugleg
æ það er ekkert smá gaman að fylgjast með henni. Það er sko ekkert annað hægt að brosa þegar maður hugsar til hennar :)
svo auðvitað rosalega góð við systur sína. Leikur, les og hjálpar til :)
svo er svakalega mikill munur hvað hún er dugleg í sundi. Hætt með kúta og syndir eins og herforingi.
en já nóg í bili hérna frá mér. Ætla að fara setja inn myndir
Áslaug skrifar næst.
bless í bili og endilega kvittið í gestabókina
kv Á G og Á G




